Algjört sjitt |
|||
|
Það er eiginlega ekkert um þetta að segja Bloggarar Atli Freyr Arngrímur Ásgeir Ásgeir P Beggi Bó Doddi Dóri Diskó Egill Elli Gauarnir Gummi Gunnar Örn> Haukur & Sindri Helga Henrik Héðinn Hildur Ingvar Júlía M Listin Langa Lovísa og Gurrý Marta Sigga Siggi Silja Snæbjörn Steindór Tóta Tótla Villi Tenglar mbl.is b2.is ruv.is MY space Lagadeild HÍ |
sunnudagur, september 23, 2007
|
fimmtudagur, júlí 12, 2007
Dagblaðið Viska Þegar ég fletti Dabbanum í morgun datt ég inn á mikla speki, sem gerist aðeins í undantekningartilvikum við lestur þess bleðils. Þar er vitnað í Plató: Vísir menn tala vegna þess að þeir hafa eitthvað að segja, vitlausir tala vegna þess að þeir verða að segja eitthvað. Þá er spurningin: Er undirritaður að falla í gildru vitlausa mannsins með þessari færslu?þriðjudagur, júlí 10, 2007
Furðulegt háttalag hunds um nótt Ahh, ég elska að vera á skítavöktum. Það gerir það að verkum að ég fer afar seint að sofa og það afar oft. Það góða er að ég er nýbúinn að fá 20 gb af tónlist frá Ívarnum mínum to keep me busy. Ég hef eytt nokkrum tíma í að sortera hana vel og vandlega. Þótt ég aðhyllist oft á tíðum skipulagt chaos, þá er það a.m.k. vel skipulagt chaos. Good Morning boys and girls, i'm your miðvikudagur, júní 27, 2007
Undarleg fréttamennska Málið um konuna sem lést á Landspítalanum í Fossvogi eftir of stóran eiturlyfjaskammt, sem hún komst yfir inni á stofnuninni, hefur örugglega ekki farið framhjá mörgum. Ég þekkti hana lítillega, hún hét Susie og var með mér í bekk á fyrsta árinu í MR. Ég þekkti hana ekki mikið fyrir utan skólann en hafði heyrt að hún væri í eiturlyfjum. Samt augljóslega klár og sjarmerandi stelpa. Ég man reyndar að ég reifst einu sinni við hana inni í skólastofunni, ekki beint í illu, en það endaði þó með því að hún hvolfdi hálfri vatnsflösku yfir mig. Annars var allt í góðu og eyddum við ásamt fleiri bekkjarsystkinum ófáum fimm mínútna hléunum í smókpásur við skólalóðina. Hún hætti svo í skólanum og þegar ég rakst á hana fyrir 1-2 árum sagðist hún hætt í "rugli" og komin í Hraðbraut. Það mætti þess vegna kalla það sem gerðist á spítalanum mikið slys. Mér finnst ekki við hæfi að gera sjálfa útför hennar að sérstöku fréttaefni eins og Stöð 2 gerði í fréttum sínum kl. 18.30 í gær. Þ.e.a.s. að mæta með kameruna og allt klabbið fyrir utan Hallgrímskirkju og að hafa fréttamanninn í stand-uppi þar fyrir utan. Gjörsamlega tilgangs- og tillitslaust. laugardagur, júní 23, 2007
Taugatitringur á RÚV Friðrikk says (21:15): Jorri says (21:15): Friðrikk says (21:15): Jorri says (21:15): Friðrikk says (21:16): Jorri says (21:16): Jorri says (21:16): Friðrikk says (21:16): Jorri says (21:16): laugardagur, júní 16, 2007
Bara svo að fólk sé ekki að mis ... þá er ljóðið sem ég setti inn áðan ekki melónkólísk yfirlýsing, ég er ekki niðurdreginn eða neitt slíkt, alls ekki. Sjáið bara. Örbylgjuljóð lifi í sápukúlu sem aldrei springur. keyri í vinnuna með sama fugladritið á bílrúðunni dag eftir dag dag eftir dag. heimsenda pítsan mín er komin. - Friðrik Árni Friðriksson föstudagur, júní 15, 2007
Þarfur þjóðfélagsþegn Mér tókst að sofa til 17:36 í dag. Ég held að það geri mig að D-manneskju. Datt ekki í hug að stilla vekjaraklukkuna, þar sem ég hélt að ég myndi a.m.k. rumska um svona 1-2 leytið. Spurning um að tala við bandaríska rúmaframleiðendur, þeir gætu notað mig sem tilraunadýr fyrir auglýsingaherferðirnar: "Svaf eins og steinn í 15 tíma í Heilsurúminu!", sama hversu óþægilegt rúmið er. Ég er þakklátur fyrir að vera gæddur þessari guðsgjöf, það eru ekki allir jafn heppnir. þriðjudagur, júní 12, 2007
Hundurinn og bjallan Að kenna hundi að bjölluhljómur þýði matartími er einfalt. Í hvert skipti sem hann fær mat hringir maður bjöllu. Að lokum byrjar hundurinn að koma hlaupandi við bjölluna, því hann hefur lært að hljómurinn þýði að nú fái hann að éta. Í dag, þegar ég búinn að setja einn Guiding light af stað í vinnunni, ætlaði ég að seilast í munntóbakið mitt en greip í tómt. Ég vissi að Guiding light þýddi tóbak (til að lina þjáningarnar). Skilyrtur, eins og hundurinn. PS. Það er einn hluti vinnunnar á myndbandadeild að horfa á Guiding light þættina sem eru svo sýndir í sjónvarpinu seinna. Ég meina, someone has to do it. PPS. Dauði Vanessu í þætti 12485 er bara feik. mánudagur, júní 11, 2007
Endurnæring
Skilaboð: Ekki mygla sitjandi á rassinum í allt sumar! Myndir koma síðar. Bendi svo á betri og ítarlegri ferðasögu á blogginu hans Palla (http://pallkvaran.blog.is/) fimmtudagur, júní 07, 2007
Komið gott
PS. Flakkarinn hefur hegðað sér undarlega, hann slekkur á sér og fer svo aftur í gang þegar ég strýk honum blíðlega... í alvöru. sunnudagur, júní 03, 2007
miðvikudagur, maí 30, 2007
Reykingar Flestir vita að frá og með 1. júní verða reykingar á veitinga- og skemmtistöðum bannaðar. Margir hafa spurt sig hvort þarna sé of langt gengið á frelsi einstaklinga. Sjálfur reyki ég stundum þegar ég fer á galeiðuna um helgar og kem gjarnan heim af skemmtistöðum lyktandi eins og skorsteinn. Þeir sem ekki reykja þurfa að sætta sig við það, ásamt starfsfólki skemmtistaða, a.m.k. sá hluti þeirra sem ekki reykja sjálf. Ég reyki inni á skemmtistöðum í skjóli míns athafnafrelsis. Ég má það sem ekki er bannað, í grófum dráttum. En er það einhver sérstakur réttur minn að reykja hvar sem ég vil? Mín mannréttindi? Tæplega. Heilbrigðisstefnan í landinu er einfaldlega að minnka tóbaksneyslu og á sér marga snertifleti eins og bann við tóbaksauglýsingum og þessar "hugljúfu" merkingar á sígarettupökkunum. Þetta er nokkuð augljóst ef maður rétt gluggar í fyrstu ákvæði laga um tóbaksvarnir nr. 6/2002, en það eru lögin sem breytt var á þann veg að reykingar á m.a. skemmtistöðum verða óheimilar. Takmarkanir á athafnafrelsi okkar leiða af réttindum og heilsu annarra svo dæmi séu nefnd. Óbeinar reykingar eru ótvírætt skaðlegar. Þá segja sumir að þessar óbeinu reykingar hafi engin ásjáanleg áhrif á þá sem sækja skemmtistaðina. Þetta getur samt ekki ráðið úrslitum og hinir reyklausu hljóta að njóta vafans. Segjum að ákveðinn hópur fólks settist gjarnan niður á kaffihús með tæki sem gæfu frá sér hátíðnihljóð og notandinn fengi góða tilfinningu í... eyrun. Eini tilgangur tækjanna væri þessi vellíðan og þau væru ekki í neinum læknisfræðilegum tilgangi. Gallinn væri að hátíðnihljóðin eyddu hægt og rólega heilasellum notenda og annarra sem væru í kringum þau. Frá mínum sjónarhjóli séð væri fullkomlega réttlætanlegt að banna notkun þessara tækja á kaffihúsunum, af þeirri einföldu ástæðu að þau skaða aðra gesti og án tillits til hve mikill skaði hlytist af hverri notkun þeirra. Því skaðlegri sem þau væru, þeim mun meiri ástæða væri til að banna þau. Fólk ofnotar gjarnan orðið "forræðishyggja" og málar hana sem eitthvað fullkomlega neikvætt fyrirbæri. Samt má ekki gleyma því að samfélagið byggist í grunninn á e-rs konar forræðishyggju ríkisvaldsins og er þá spurningin sú hvort næg rök réttlæti hana, það ætti að vera mælikvarðinn á hvort hún sé góð eða slæm. Ég var ekki að biðja um reykingabannið, enda reyki ég oft sjálfur. Samt lít ég ekki á það sem einhverja óréttlætanlega skerðingu á mínu frelsi, nefnilega þvert á móti. Ég skil ekki einu sinni af hverju ég reyki. mánudagur, maí 28, 2007
|
mánudagur, maí 21, 2007
Dagurinn 10:00-12:00 Horfði á E.R. þátt án hljóðs (ástæða of flókin til að segja hér) 12:00-12:30 Borðaði fisk í mötuneytinu 12:30-19:15 Klippti fréttir 19:15-20:00 Borðaði fisk í mötuneytinu 20:00-22:00 Klippti fréttir 22:48 Sit núna heima og er að borða harðfisk. Notice a pattern, anyone? miðvikudagur, maí 16, 2007
Viðurstyggilegt nautnalíf Hvað táknar það að maður sé enn í nærfötunum einum klæða undir sæng með úfið hár, japlandi harðfisk (þunnur) kl. 15:11 á miðvikudegi? Jú, próflok. Ég, Ívar og Jorri lifðum í viðurstyggilegum hedónisma í allan gærdag. Byrjuðum daginn á sundi í Vesturbæjarlauginni kl. 8:00. Litum svo við í bakaríi og héldum upp í Árnagarð þar sem við áttum að þreyta próf í Heimspekilegum forspjallsvísindum (einnig þekkt sem fýlan, skítafýlan o.fl.) kl. 9:00. Það gekk betur en ég hafði þorað að vona, í ljósi lélegra afkasta um kosningahelgina (næstum því ógerlegt að læra eitthvað af viti þessa helgi). Eftir prófið fengum við okkur bát mánaðarins á Subway og síðan í Laugar Spa. Tókum okkur góðan tíma í öllum gufuböðunum, fórum í "tropical shower", heita pottinn, fótabaðið og svo ískalda hressingu (togar í spotta sem hellir úr fötu fullri af ísköldu vatni yfir mann). Þegar við vorum orðnir vel gufusoðnir kíktum við í e-rs konar hvíldarherbergi með svörtum og þægilegum legustólum, röðuðum kringum snarkandi arineld. Ég sofnaði og var víst farinn að hrjóta hátt þar til Íbbi vakti mig til að óhljóðunum linnti. Eftir þetta mók fórum við heim að gera okkur klára fyrir Hereford kl. 20:00. Eftir að hafa sporðrennt 300 gr. af nautalundum með dýrindis rauðvíni og Creme Brulée í eftirrétt settumst við í betri stofuna og skeggræddum pólitík og heimsmálin með viskí í hönd. Eftir það Boston og Ölstofan í smá bjór. Við Ívar héldum síðan heim á leið og tefldum skák. Eftir að hafa rúllað yfir piltinn í skákinni fórum við saman í rómantískan göngutúr meðfram ströndinni móti Gróttuvita og út á golfvöll. Löbbuðum síðan meðfram veginum til baka og mættum þar lögreglunni sem tók okkur í stutt spjall, enda klukkan orðin margt og guð veit hvað fer fram á bílastæðinu hjá golfvellinum í skjóli nætur. Síðan skildu leiðir okkar og ég fór heim og svaf svefni nautnaseggsins. Sannkallaður gourmet dagur sem verður endurtekinn að ári. föstudagur, maí 04, 2007
Ættarslotið
Ef skilnaður er yfirvofandi í lífi ykkar, fyrrverandi maki tálmar umgengni eða þið viljið bara ræða málin svona almennt, er ykkur velkomið að kíkja í heimsókn á Sunnuveginn. Alltaf glatt að hjalla og heitt á könnunni. sunnudagur, apríl 15, 2007
Nýbreytni hjá Mogganum Nú er Mogginn farinn að birta heila síðu af fréttum sem eru flokkaðar sem "Auðlesið efni". Það er allt gott og blessað, letrið er stærra, meira bil milli stafa og orða o.fl. En eitt óþolandi fyrirbæri lýstur mig í augun eins og þrumufleygur. Af einhverjum ástæðum hefur ritari umræddra frétta ákveðið að skipta þriðja hverju orði í tvennt eða þrennt með bandstriki /-strikum á milli. Setningar á borð við "Náms-menn fá ókeypis í strætó, [...] bjóða borgar-búum að ferðast öðru-vísi [...] getum við alið þá dá-lítið upp [...] verð-launa vist-hæfa bíla [...], mega ekki selja frá-sagnirnar" o.fl. o.fl. Allavega gerir þetta band-strika-brjál-æði (spurning með síðasta orðið) minn lestur helmingi erfiðari. Mér líður alltaf eins og ég fái högg í hausinn þegar ég rekst á hvert bandstrik og er alveg slitinn eftir eina grein og 30 slík. Þó virðist engin föst regla á því að hve miklu marki orðunum er skipt upp. Á einum stað stendur "regn-hlífar-samtökin" en ofar í sömu grein er það "regnhlífar-samtökin". Annars staðar segir "mats-nefnd eignar-námsbóta", en glöggir málvísindagúrúar eru náttúrulega fljótir að sjá gallann á gjöf Njarðar í því tilfelli þar sem réttara væri að segja "eignarnáms-bóta" eða "eignar-náms-bóta" ef maður er í stuði. Hvað eru námsbætur? Svo er orðinu pólitísk skipt upp í tvennt eða "Björg póli-tísk á tónleikum". Það er ljóst að Mogginn hefur ráðist í nýyrðasmíð með því að koma með lýsingarorðið "tískur" inn í íslenska tungu. Merkingin er nokkuð á reiki. Svo virðast þeir hættir að nenna þessu neðst á síðunni þar sem seinni hluti einnar greinar er bandstrikalaus. Ég veit ekki hvað Mogga-mönnum (neiiii) gengur til með þessu, gæti verið að þetta henti lesblindum? Ég meika þetta allavega ekki. þriðjudagur, apríl 10, 2007
Sirkus Það er dálítið skrýtið að þessi stöð sé enn í gangi. Nú er reyndar búið að rugla hana, það er kannski fyrsta skrefið í að hún hverfi. Ég ætlaði að horfa á fréttirnar hjá Stöð 2 kl. 18.30, sem eru líka sýndar á Sirkus í opinni dagskrá (er ekki með s2 stillta inn á sjónvarpið mitt). Fékk að horfa á endinn á hinum vandaða fréttaskýringaþætti "The insider" sem skilur mann alltaf eftir jafntóman. Síðan birtist dagskrárskilti þar sem hinn eitursvali dagskrárkynnir Sirkus segir "Næst eru fréttir Stöðvar 2... Take it away Logi". Frekar hallærislegt, sérstaklega þar sem Logi Bergmann var ekki einu sinni að lesa fréttirnar. Ótraustvekjandi líka. Hvernig væri Eva Sólan: "Give me some sugar, Þórhallur", "Koddu með það, Palli útvarpsstjóri". Er þetta ekki svolítið hallærislegt? sunnudagur, apríl 01, 2007
Þessi tækni Þegar minn tryggi vef-browser, Firefox, er farinn að aftra mér frá því að blogga [á Myspace] fyllist ég efasemdum. Það er nefnilega þannig að í hvert sinn sem ég reyni að fara inn í blogg-umhverfið birtist mér ekkert nema hvítur skjár. Hann vill kannski ekki að ég bloggi, eða hvað? Eiga þessi bloggskrif kannski ekkert erindi til almennings? Innihalda ekkert uppbyggjandi framlag til samfélagsins? Er hvíti, auði skjárinn lýsandi fyrir innihald þessa bloggs? Að því gefnu að þau eigi erindi út á við og að fólk lesi þetta blogg, les það bloggið sér til andlegrar fróunar eða einfaldlega af vana eða bæði? Hefur vaninn e.t.v. skapast vegna þess hve andleg fróun af lesningunni er mikil? Ég bara veit það ekki, hreinlega veit það ekki. Að þessum áleitnu spurningum slepptum er það gott að frétta að skólinn er að klárast, en að vísu nálgast prófin jafnóðum. Hef þannig lagað ekki áhyggjur af þeim, að því gefnu að eyddar klukkustundir á Þjóðarbókhlöðunni verði jafnmargar sem skyldi. Það getur verið skemmtilegt að sökkva sér í viðfangsefnið í prófatörnunum og þá taka þær venjulega fljótt af. Hlakka engu að síður mjög mikið til að "klár'etta hellíti". Vera hjá RÚV ohf. í sumar að smíða fréttir og jafnvel fara til Berlín. Þetta verður eitthvað. miðvikudagur, mars 14, 2007
Þjóðráð dagsins Vissuði að maður getur, óbeint, arfleitt hundinn sinn eða annað dýr? Ef Björgólfur ætti hund og enga skylduerfingja, þ.e.a.s. maka eða niðja (börn -> barnabörn etc.) gæti hann í raun ráðstafað öllu fé sínu með erfðaskrá í sérstakan sjóð handa hvutta og þannig fengju mögulegir eftirlifandi lögerfingjar ekkert, t.d. foreldrar og systkini. Bæri þá að annast það að fénu yrði ráðstafað í þágu hundsins. Þau fengju þó líklega sjóðnum skipt á milli sín eftir dauða hundsins, nema þarfir hans hefðu farið fram úr öllu hófi og sjóðurinn tæmst. Annars gæti þessu fyrirkomulagi verið háttað svo að peningarnir rynnu eftir dauða hans til Hundahótels eða álíka í stað ættingjana. Munið þetta ef þið verðið í sambærilegri stöðu og eigið leiðinleg ættmenni. | ||